Geimt en ekki gleimt

Skrifað: 07.19.2024

Ég skrifaði um þetta teppi um daginn.  Það fór svo ofan í skúffu á meðan hönnuðurinn og saumakonan ígrundaði næstu skref.  Nú eru nokkur skref til viðbótar orðin að veruleika.   Mér fannst alltaf eitthvað vanta meira í miðjuna og ákvað því að ná í gylltan þráð (þar sem að mínu mati fer vel á svartann bakgrunn) og nýta skrautsporin á vélinni minni. Ég strikaði línur til að fara eftir og þetta er útkoman.

Ég ákvað líka að bæta aðeins við og setti "border" í sama svarta litnum og notaði svo ósýnilegt spor til að sauma það á.  Þetta kemur vel út að mestu en ég er þó enn að gera það upp við mig hvort ég þurfi ekki að hafa hornin eitthvað öðruvísi.   Það kemur í ljós síðar.....

Svipaðar færslur á blogginu

Hunny Bunny

Hunny Bunny

Þetta er verkefni sem ég er búin að vera með í maganum síðan í vetur. Ég var á einhverju flandri um Pinterest og sá mynd af þessu teppi. Þetta er ekki eitthvað sem maður saumar á nokkrum dögum, það er alveg ljóst, en það er allt í lagi því þetta er svo skemmtilegt....

Lesa meira

Nýtt dót

Nýtt dót

Gaman gaman! Já, nú er ég aldeilis komin með nýtt dót!  Það var fyrir nokkru síðan sem ég sá auglýsingu á Fésbók, þar sem kona ein var að auglýsa draumadótið mitt.  Ég kannaðist aðeins við konuna, eða a.m.k. ættina, en hún er nú bara frænka eiginmannsins míns.  Ég...

Lesa meira

“Málað” með tvinna

“Málað” með tvinna

Um eftirmiðdag í gær ákvað ég að spreyta mig í því sem á enskunni kallast Thread painting.  Samkvæmt YouTube myndbandi sem ég vafraði á um daginn þá er þetta nefnilega ágætis æfing í því að nota "Free-motion" tæknina en það er einmitt það sem ég er að æfa mig í...

Lesa meira