Æfingar með “Thread Painting”.

Skrifað: 07.16.2024

Eins og svo oft áður var ég að vafra á YouTube og lennti á myndbandi frá konu sem var að nota saumavélina sína í að búa til myndir með tvinna. Auðvitað varð ég að prófa mig áfram í því. Ég nýtti afganga og klippti út blóm, blómið úr gulu efni og laufblöð og stöngul úr grænu efni…. Ég notaði eitthvað sem heitir heat n´ seal sem er með lími báðumegin og festi blómhlutana á bakgrunninn. Ég notaði útsaumstvinna sem þráð, en það má nota hvaða tvinna sem er (nema lélegan sem slitnar). Ég notaði bara þennan tvinna afþví að þeir voru að “réttum lit”. Ég notaði nýja fótinn minn “Opentoe sensormatic free-motion” og byrjaði. Þetta er einmitt ágætisleið til að æfa sig í að nota free-motion fæturnar og að fá tilfinninguna fyrir notkuninni s.s. hversu hratt maður þarf að hreyfa efnið undir til að fá rétta sporlengd miðað við hraðan á saumavélinni og allt það.

Ég á enn aftir að fylla betur í með gula litnum á blóminu og e.t.v. gera eitthvað meira með þetta. Þá ætla ég líka að nota þessa aðferð á einhvern hluta á landslagsmynd sem varð óvart til í síðustu viku.

Svipaðar færslur á blogginu

Hunny Bunny

Hunny Bunny

Þetta er verkefni sem ég er búin að vera með í maganum síðan í vetur. Ég var á einhverju flandri um Pinterest og sá mynd af þessu teppi. Þetta er ekki eitthvað sem maður saumar á nokkrum dögum, það er alveg ljóst, en það er allt í lagi því þetta er svo skemmtilegt....

Lesa meira

Nýtt dót

Nýtt dót

Gaman gaman! Já, nú er ég aldeilis komin með nýtt dót!  Það var fyrir nokkru síðan sem ég sá auglýsingu á Fésbók, þar sem kona ein var að auglýsa draumadótið mitt.  Ég kannaðist aðeins við konuna, eða a.m.k. ættina, en hún er nú bara frænka eiginmannsins míns.  Ég...

Lesa meira

“Málað” með tvinna

“Málað” með tvinna

Um eftirmiðdag í gær ákvað ég að spreyta mig í því sem á enskunni kallast Thread painting.  Samkvæmt YouTube myndbandi sem ég vafraði á um daginn þá er þetta nefnilega ágætis æfing í því að nota "Free-motion" tæknina en það er einmitt það sem ég er að æfa mig í...

Lesa meira