Ég hef verið á fullu að æfa mig í Free motion Quilting upp á síðkastið og því sett saman efnisbúta sem líkjast því þegar quilt teppi eru quiltuð. Auðvitað eru þessi tilraunastykki tilvalin í einhverskonar handavinnustykki. Þessi taska er einmitt afurð af einni slíkri. Ég ákvað sem sagt að búa til tösku fyrir litlu Cricut mini hitapressuna mína. Þetta er ekki fullkomnasta verkið en dugar bara nokkuð vel fyrir þetta hlutverk.
Hunny Bunny
Þetta er verkefni sem ég er búin að vera með í maganum síðan í vetur. Ég var á einhverju flandri um Pinterest og sá mynd af þessu teppi. Þetta er ekki eitthvað sem maður saumar á nokkrum dögum, það er alveg ljóst, en það er allt í lagi því þetta er svo skemmtilegt....




Recent Comments