Skirtuteppið og EQ8

Skrifað: 06.11.2024

#3  Skirtuteppið

Einhverntíma fyrir langalöngu tók ég nokkrar gamlar skirtur af elsta syninum, og e.t.v. eiginmanninum líka, og klippti þær í sundur í efnivið í saumaskapinn. Ég saumaði eitthvað úr hluta af þeim en nýtti kannski tölurnar meira í tölur á fötin á prjónadúkkunum mínum.

 

Hluti af þessu voru allskonar, misstórir bútar sem ég tímdi samt ekki að henda, þannig að ég fór á YouTube til að fá hugmyndir um hvað ég gæti gert úr þessu.  Þar fann ég m.a. myndband frá konu sem ég hef fylgst þónokkuð með síðan um hvernighún saumar alla smábúta (minnst 2-2,5 tomma) á pappírsstrimla og nýtir þá svo í “crumb-blokkir” eða einhver önnur verkefni.  Ég saumaði þá skirtubútana á pappírsræmur, notaði bara venjulegan prenntarapappír eða öllu heldur pappír sem ég hafði prenntað einhverja fræðigreinar á til að auðvelda lestur fyrir eitthvert skólaverkefnið.  Ég geri svo ekkert meira á þeim tíma svo þetta lá  bara ofaní skúffu. Þegar ég svo flutti saumaherbergið mitt upp á efrihæðina fann ég þetta ofan í einhverjum kassanum og ákvað að gera tilraun með ræmurnar.

Ég saumaði þær einfaldlega bara saman í ferhyrndar blokkir og setti svartan ramma utanum. Í millitíðinni datt ég niður á snilldar forrit sem ég hef verið að leika mér í og prófa. Forritið heitir  EQ8 og er forrit til að hanna bútasaumsteppi.  Uppröðunin á blokkunum er einmitt afraksturinn af fikti með forritinu góða. Ég er enn að læra á það en þetta er svo mikil snilld að þegar prufutíminn var liðinn ákvað ég að kaupa það og sé ekki eftir því enn að minnsta kosti

Svipaðar færslur á blogginu

Hunny Bunny

Hunny Bunny

Þetta er verkefni sem ég er búin að vera með í maganum síðan í vetur. Ég var á einhverju flandri um Pinterest og sá mynd af þessu teppi. Þetta er ekki eitthvað sem maður saumar á nokkrum dögum, það er alveg ljóst, en það er allt í lagi því þetta er svo skemmtilegt....

Lesa meira

Nýtt dót

Nýtt dót

Gaman gaman! Já, nú er ég aldeilis komin með nýtt dót!  Það var fyrir nokkru síðan sem ég sá auglýsingu á Fésbók, þar sem kona ein var að auglýsa draumadótið mitt.  Ég kannaðist aðeins við konuna, eða a.m.k. ættina, en hún er nú bara frænka eiginmannsins míns.  Ég...

Lesa meira

“Málað” með tvinna

“Málað” með tvinna

Um eftirmiðdag í gær ákvað ég að spreyta mig í því sem á enskunni kallast Thread painting.  Samkvæmt YouTube myndbandi sem ég vafraði á um daginn þá er þetta nefnilega ágætis æfing í því að nota "Free-motion" tæknina en það er einmitt það sem ég er að æfa mig í...

Lesa meira