Teppi enn í vinnslu

Skrifað: 06.10.2024

Mynd 1

Mynd 2

 

Þetta teppi er búið að vera nokkurn tíma í vinnslu en aðallega vagna þess að ég hef verið svo óákveðin með hönnunina á því.  Ég raðaði blokkunum saman í allskonar mynstur en endaði á að sauma þær saman eins og sést á mynd tvö.

Enn sem komið er bíður það svo eftir að verða klárað (border/bak/quilt) en ég hef jafnvel verið að spá í að nýta einhvert af skrautsporunum á saumavélinni minni til að skreyta það aðeins þar sem mér finnst að stundum vanta eitthvað meira.

 

 

 

Svipaðar færslur á blogginu

Hunny Bunny

Hunny Bunny

Þetta er verkefni sem ég er búin að vera með í maganum síðan í vetur. Ég var á einhverju flandri um Pinterest og sá mynd af þessu teppi. Þetta er ekki eitthvað sem maður saumar á nokkrum dögum, það er alveg ljóst, en það er allt í lagi því þetta er svo skemmtilegt....

Lesa meira

Nýtt dót

Nýtt dót

Gaman gaman! Já, nú er ég aldeilis komin með nýtt dót!  Það var fyrir nokkru síðan sem ég sá auglýsingu á Fésbók, þar sem kona ein var að auglýsa draumadótið mitt.  Ég kannaðist aðeins við konuna, eða a.m.k. ættina, en hún er nú bara frænka eiginmannsins míns.  Ég...

Lesa meira

“Málað” með tvinna

“Málað” með tvinna

Um eftirmiðdag í gær ákvað ég að spreyta mig í því sem á enskunni kallast Thread painting.  Samkvæmt YouTube myndbandi sem ég vafraði á um daginn þá er þetta nefnilega ágætis æfing í því að nota "Free-motion" tæknina en það er einmitt það sem ég er að æfa mig í...

Lesa meira