Brauð og Cricut verkefni

Skrifað: 07.18.2024

Dagurinn í dag fór að mestu í heimiliststörf, þessi venjulegu…. Ég ræsti þó Cricut græjuna mína og lét hana skera út fyrir mig skreytingu á vatsdúnkinn minn. Ég notaði “color changing vinyl” frá Cricut og er mjög ánægð með útkomuna.

 

 

Í gær setti ég líka hveiti, ger og vatn í skál og setti inn í tækjaskáp…. Planið var nefnilega að gera Bloomer brauð. Ég játa það hér og nú að ég var næstum því búin að gleima blöndunni inni í skáp en jemundur minn hvað útkoman var dásamleg!  Þetta brauð verður sko bakað aftur….

Fyrir forvitna þá er uppskriftin á Youtube  –  How to Bake The Iconic British Bloomer at Home

Svipaðar færslur á blogginu

Hunny Bunny

Hunny Bunny

Þetta er verkefni sem ég er búin að vera með í maganum síðan í vetur. Ég var á einhverju flandri um Pinterest og sá mynd af þessu teppi. Þetta er ekki eitthvað sem maður saumar á nokkrum dögum, það er alveg ljóst, en það er allt í lagi því þetta er svo skemmtilegt....

Lesa meira

Nýtt dót

Nýtt dót

Gaman gaman! Já, nú er ég aldeilis komin með nýtt dót!  Það var fyrir nokkru síðan sem ég sá auglýsingu á Fésbók, þar sem kona ein var að auglýsa draumadótið mitt.  Ég kannaðist aðeins við konuna, eða a.m.k. ættina, en hún er nú bara frænka eiginmannsins míns.  Ég...

Lesa meira

“Málað” með tvinna

“Málað” með tvinna

Um eftirmiðdag í gær ákvað ég að spreyta mig í því sem á enskunni kallast Thread painting.  Samkvæmt YouTube myndbandi sem ég vafraði á um daginn þá er þetta nefnilega ágætis æfing í því að nota "Free-motion" tæknina en það er einmitt það sem ég er að æfa mig í...

Lesa meira