Sólskinsteppið

Skrifað: 06.05.2024

Á YouTube er kona, (ein af mörgum reyndar) sem heitir Sarah.  Hún hefur kennt mér margt um saumavélina mína í nokkrum örmyndböndum.

Hún bíður einnig upp á lengri námskeið/myndbönd á heimasíðunni sinni, The Stiching Cosmos for Pfaff,  sem höfðu freistað mín alveg frá því að hún bauð upp á þau í fyrsta sinn.  Það var í lok desember (23) sem ég keypti mér aðgang að þessu námskeiði.

Ég átti ekki mikið úrval af efnum en ég ákvað að nota það sem ég átti einkum og sér í lagi þar sem ég sá fram á að eiga nóg í blokkirnar.  Ég valdi bláa og gula liti en ég var samt eiginlega ekki alveg nægilega sátt  við lita valið. Þátttt fyrir það fór ég samviskusamlega í gegn um öll myndböndin og kláraði blokkirnar, eða a.m.k. kláraði þær blokkir sem ég gat og það snérist aðallega um að eiga ekki fætur og/eða efnivið sem átti að nota.

Ég mæli með þessu námskeið fyrir allan peninginn en ég lærið svo ótrúlega margt, bæði á saumavélina mína og fylgihluti, einhverja sem væru örugglega enn alveg ónotaðir ofaní skúffu ef ekki væri fyrir hana Söru.

 

Ég saumaði teppið saman og var enn ekki nægilega ánægð með það….  Þá var kominn febrúar….. og teppið fór bara ofaní skúffu.

Það var svo í maí, þegar ég fór á saumahelgi Bóthildar að ég ákvað fyrir einhverja rælni að taka teppið upp úr skúffunni og hafa það með mér.   Konurnar sem voru á staðnum komu með ýmsar tillögur um teppið og einhverjar töluðu um að það væri fallegt, janfvel dásamlegt!  Enn var ég ekki sannfærð….   Þá kom ein góð kona að og kom með tillögu að borderi og voila!   Nú er þetta teppi ekki “ljóta teppið” heldur “sólskinsteppið”…..

Það er þó enn í vinnslu þar sem það hefur enn ekki fengið bakgrunn eða quilting….. en það mun gerast…..  Góðir hlutir gerast nefnilega hægt og ég er enn að æfa mig í free-motion-quilting

Svipaðar færslur á blogginu

Hunny Bunny

Hunny Bunny

Þetta er verkefni sem ég er búin að vera með í maganum síðan í vetur. Ég var á einhverju flandri um Pinterest og sá mynd af þessu teppi. Þetta er ekki eitthvað sem maður saumar á nokkrum dögum, það er alveg ljóst, en það er allt í lagi því þetta er svo skemmtilegt....

Lesa meira

Nýtt dót

Nýtt dót

Gaman gaman! Já, nú er ég aldeilis komin með nýtt dót!  Það var fyrir nokkru síðan sem ég sá auglýsingu á Fésbók, þar sem kona ein var að auglýsa draumadótið mitt.  Ég kannaðist aðeins við konuna, eða a.m.k. ættina, en hún er nú bara frænka eiginmannsins míns.  Ég...

Lesa meira

“Málað” með tvinna

“Málað” með tvinna

Um eftirmiðdag í gær ákvað ég að spreyta mig í því sem á enskunni kallast Thread painting.  Samkvæmt YouTube myndbandi sem ég vafraði á um daginn þá er þetta nefnilega ágætis æfing í því að nota "Free-motion" tæknina en það er einmitt það sem ég er að æfa mig í...

Lesa meira