Lítið krúttlegt teppi með applikeringu

Skrifað: 06.23.2024

Teppi  klárað – 18. júní

Eitt af þessum teppum er í barnastærð (kannski aðeins stærra en það þó) en það er teppið sem ég hef klárað alveg.  Ég var því miður ekki dugleg að taka myndir í ferlinu en hér er mynd af því fullkláruðu.  Það er ekki fullkomið! …. en ég er bara mjög ánægð með útkomuna engu að síður.  Efnið sem ég notaði er blanda af einhverju sem ég átti til og hef átt lengi, tiltölulega nýjum efnum og lökum, sem annarsvegar voru keypt sérsaklega í saumaskapinn og hins vegar eitthvað sem ég átti inni í skáp en gat ekki lengur notað á rúm fjölskyldumeðlima.

“Quilt” saumurinn er bara saumaður í saumavélinni minni. Ég fann mynstur á Pinterest sem ég stækkaði í passlega stærð í Photoshop og prenntaði síðan út. Ég notaði síðan fatakrít til að strika mynstrið á teppið og saumaði ofaní strikin. Á því eru líka tvær applikeraðar stúlkur sem gerir teppið svoldið krúttlegt í mínum augum.

 

Svipaðar færslur á blogginu

Hunny Bunny

Hunny Bunny

Þetta er verkefni sem ég er búin að vera með í maganum síðan í vetur. Ég var á einhverju flandri um Pinterest og sá mynd af þessu teppi. Þetta er ekki eitthvað sem maður saumar á nokkrum dögum, það er alveg ljóst, en það er allt í lagi því þetta er svo skemmtilegt....

Lesa meira

Nýtt dót

Nýtt dót

Gaman gaman! Já, nú er ég aldeilis komin með nýtt dót!  Það var fyrir nokkru síðan sem ég sá auglýsingu á Fésbók, þar sem kona ein var að auglýsa draumadótið mitt.  Ég kannaðist aðeins við konuna, eða a.m.k. ættina, en hún er nú bara frænka eiginmannsins míns.  Ég...

Lesa meira

“Málað” með tvinna

“Málað” með tvinna

Um eftirmiðdag í gær ákvað ég að spreyta mig í því sem á enskunni kallast Thread painting.  Samkvæmt YouTube myndbandi sem ég vafraði á um daginn þá er þetta nefnilega ágætis æfing í því að nota "Free-motion" tæknina en það er einmitt það sem ég er að æfa mig í...

Lesa meira