Að skapa er lífið

 Þetta er litla vefsíðan mín þar sem ég spjalla um það sem ég er að föndra við hverju sinni.  Ég sauma, prjóna, hekla, bý til eitthvað úr pappír, sker út með Cricut græjunni minni og margt fleira.

Verið velkomin á bloggið mitt

Ég hef aldrei verið góður bloggari en hins vegar hef ég skrifað reglulega hjá mér ýmsa mynnispunkta og hugleiðinar um verkefnin sem ég vinn hverju sinni í bók.  Það sem vakir fyrir mér með þessu bloggi er kannski að halda áfram að skrifa eins og ég geri í bókina, en að gera þetta svona í tölvu gerir manni auðveldara að tengja saman texta og myndir.  Ég hef ekki verið nægilega dugleg að taka myndir af verkefnunum mínum sem mér finnst oft á tíðum vanta, þegar ég lít til baka og les yfir gamlar færslur úr dagbókinni minni.

Ég er  örugglega ekki besti textasmiður í heimi og á örugglega eftir að skrifa færslur sem eru bara "rimsírams" og e.t.v. ó- eða illskiljanlegar fyrir lesandan. Það er þó mín von að einhverjum öðrum þyki eitthvað varið í þetta blogg mitt, eða hafi einhverskonar not fyrir það.

Núna nýlega hef ég mest verið í því að sauma bútasaumsteppi en síðan í byrjun maí er ég búin að sauma fimm toppa. Það sem stoppar mig í að klára teppin (allt nema eitt) er aðallega að mig vantar að fara í búð og kaupa efni fyrir bak og millilag.

Um mig

Ég heiti Sigrún Ólafsdóttir og er með sauma-, prjóna- ljósmynda- og vefdellu, auk þess að hafa ánægju af allskonar  öðru föndri.   

Ég er með B.A. gráðu í leikskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands og vinn sem deildarstjóri á Heilsuleikskólanum Suðrvöllum í Sveitarfélaginu Vogum þar sem ég bý.

Þú ert á vefrun.com

Vefirnir mínir

Vefrún.is

Vefrún Vefsmiðja varð til þegar ég fór í það að hanna vefi fyrir aðra...

Mamman.net

Þetta er bara svona gamaldags ljósmyndablogg síða. Ég hef ekki verið nægilega dugleg að uppfæra hana upp á síðkastið.

Vefrún.net

Þarna eru uppskriftir og ýmislegt fleira en er ekki opið fyrir nema nokkra útvalda

Digital-Dreaming.com

Þetta er portrait og/eða fjölskyldu og vina ljósmyndasíðan mín.  Þar eru til sýnis ljósmyndir sem ég hef tekið í gegn um tíðin.

Coffee Pixel .com

Þessi vefur er í vinnslu, en þar er planið að setja inn ýmsar upplýsingar um myndvinnslu og jafvel eitthvað sem gæti nýst öðrum við myndvinnsluna.

Leikskóla.net

Þessi vefur var upphaflega settur í loftið sem fylgi vefur með lokaverkefninu mínu úr háskólanum. Eins og er er hann ekki opinn almeningi.