Uppfærsla
- Þann 26. júlí 2008
- Skráð af admin
- í Fjölskyldan, Tilkynningar
0
Síðustu daga höfum við verið að uppfæra hjá okkur.
Stýrikerfið á vefþjóninum var orðið nokkuð úrelt og var því skipt út fyrir nýjasta nýtt.
Þetta á að tryggja aukið öryggi, þar sem nokkrar öryggisholur voru komnar fram sem erfitt var að loka í gamla kerfinu.
Nú er það allt bætt.
Enn um sinn má búast við að eitthvað virki ekki sem best í vefjum okkar. Einhverjar síður kannski týndar, eða auðar, eða guð má vita hvað annað.
Þá er bara að senda okkur tölvupóst, benda á villurnar, og við lögum þær. Kannski. Ef við nennum því. Það er nefnilega sumar, og ekki alveg gefið að það sé álitið mikilvægast að sitja við tölvuskjá.
Smá skilaboð
- Þann 11. júní 2008
- Skráð af admin
- í Tilkynningar
0
Ég er aðeins að fikta í síðunni þannig að það geta komið fram fullt af leiðinda villum…. Vildi bara láta vita af því…. :)
Hér sé líf….
- Þann 28. maí 2008
- Skráð af admin
- í Fjölskyldan
0
Það hefur skelfilega lítið verið bloggað hérna undanfarið. Þetta ku víst vera fyrsta blogg ársins! Það er svosem ekkert mikið að ske hérna, annað en þetta vnejulega, vinna, borða, sofa, þannig að lífið hérna hefur kannski ekki gefið okkur mikið tilefni til bloggs.
Það er nú engin breiting á því núna, þó svo að þessar línur birtast hér nú…. og ef til vill einhverjir sem velta því fyrir sér, hvers vegna í ósköpunum við erum að halda úti þessarri síðu. Svarið við því er aðallega á nördíska vísu… þetta er jú bloggað á kerfi sem smíðað er af undirritaðri og er einfaldlega notað til prófanna og ýmiskonar tilrauna sem gætu komið viðskiptavinum til góðs.
En nóg um það í bili…. Ljósmyndunnar dellan hefur síðustu mánuði tekið undirritaða heljargreipum og var nú dellan þó nokkur fyrir. Síðan í desember á síðastliðu ári hef ég verið að taka þátt í sérstöku mynd-á-dag verkefni. Menn gera þetta á marga vegu…. oftast er bara tekin mynd af einhverju skemmtilegu, ein á dag og svo myndin sent á Flickr…. Sum þessarra verkefna ganga líka út á það að taka sjálfsmyndir. Verkefnið sem ég skráði mig á gengur hins vegar út á myndir af börnum.
Ég lagði ekki út í að taka mynd á dag af öllum mínum, sérstaklega þar sem sum þeirra eiga það til að hlaupa í burtu ef þau sjá myndavélar. Þess vegna valdi ég að taka bara myndir Önnu og Arnbjörgu.
Hann Stefán var einn þeirra sem ekki vildu láta taka mynd af sér þegar ég byrjaði á verkefninu. Á því hefur þó orðið allnokkur breiting… og má með sanni segja að nú, þegar þessi orð eru skrifuð, er mun auðveldara að taka myndir af honum en systrum hans. Hann er jafnvel að gefa Önnu góða punkta í sambandi við pósur og annað í myndatökunni.
Jól 2007
- Þann 26. desember 2007
- Skráð af admin
- í Fjölskyldan
0
Hér eru allir liggjandi í leti, með skál af nammi sér við hlið. Það er bara eins og það á að vera, er það ekki? Við vonum að allir sem þetta lesa eigi gleðileg jól og óskum öllum jafnframt hamingju og farsældar á komandi ári…
Til þeirra sem áhuga hafa má geta þess að ljósmyndir frá okkur eru reglulega settar inn á Flickerinn okkar.
Nýja starfið húsbóndans.
- Þann 2. desember 2007
- Skráð af admin
- í Fjölskyldan
0
Hjörtur hefur störf á nýjum stað.
Hættur að smíða alla daga, og kominn í sparigallanum inn á Veðurstofu.
Hvað þar á að gera er ekki alveg ljóst, en vitað að það er tölvutengt á einhvern hátt, allavega er starfsheitið Kerfisstjóri.
Þetta bar allt afar brátt að. Í kringum 15 nóv hringdi síminn og var það tölvudeildarstjórinn að spyrja hvort karlinn væri til í að koma í vinnu hjá hinu opinbera. Fyrir sakir kulda og bleytu þann daginn var viljinn meiri en oft annars, og var samningum fram haldið næsta dag og síðan aftur fáeinum dögum síðar, sem leiddi af sér að samningar náðust.
Karlinn skellir sér svo í sparigallanum í vinnuna 3. des.