Vefrun.com RSS http://vefrun.com/rss.php Vefrún :: Fjölskyldublogg is Sun, 07 Sep 2008 08:54:04 UTC Sun, 07 Sep 2008 08:54:04 UTC http://vefrunl.com vefrun@vefrun.is vefrun@vefrun.is Hér sé líf.... - 2008-05-28 12:21:14 2008-05-28 12:21:14 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=292

Það hefur skelfilega lítið verið bloggað hérna undanfarið.  Þetta ku víst vera fyrsta blogg ársins!   Það er svosem ekkert mikið að ske hérna, annað en þetta vnejulega, vinna, borða, sofa, þannig að lífið hérna hefur kannski ekki gefið okkur mikið tilefni til bloggs.  

Það er nú engin breiting á því núna, þó svo að þessar línur birtast hér nú.... og ef til vill einhverjir sem velta því fyrir sér, hvers vegna í ósköpunum við erum að halda úti þessarri síðu.   Svarið við því er aðallega á nördíska vísu... þetta er jú bloggað á kerfi sem smíðað er af undirritaðri og er einfaldlega notað til prófanna og ýmiskonar tilrauna sem gætu komið viðskiptavinum til góðs. 

En nóg um það í bili....  Ljósmyndunnar dellan hefur síðustu mánuði tekið undirritaða heljargreipum og var nú dellan þó nokkur fyrir.  Síðan í desember á síðastliðu ári hef ég verið að taka þátt í sérstöku mynd-á-dag verkefni.   Menn gera þetta á marga vegu.... oftast er bara tekin mynd af einhverju skemmtilegu, ein á dag og svo myndin sent á Flickr....  Sum þessarra verkefna ganga líka út á það að taka sjálfsmyndir.  Verkefnið sem ég skráði mig á gengur hins vegar út á myndir af börnum.   

Ég lagði ekki út í að taka mynd á dag af öllum mínum, sérstaklega þar sem sum þeirra eiga það til að hlaupa í burtu ef þau sjá myndavélar.  Þess vegna valdi ég að taka bara myndir Önnu og Arnbjörgu.  

Hann Stefán var einn þeirra sem ekki vildu láta taka mynd af sér þegar ég byrjaði á verkefninu.   Á því hefur þó orðið allnokkur breiting... og má með sanni segja að nú, þegar þessi orð eru skrifuð, er mun auðveldara að taka myndir af honum en systrum hans.  Hann er jafnvel að gefa Önnu góða punkta í sambandi við pósur og annað í myndatökunni. 

 

http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=292
Jól 2007 - 2007-12-26 17:06:34 2007-12-26 17:06:34 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=284

Diamonds are a girls best friend.... Hér eru allir liggjandi í leti, með skál af nammi sér við hlið.  Það er bara eins og það á að vera, er það ekki?  Við vonum að allir sem  þetta lesa eigi gleðileg jól og óskum öllum jafnframt hamingju og farsældar á komandi ári...

Til þeirra sem áhuga hafa má geta þess að ljósmyndir frá okkur eru reglulega settar inn á Flickerinn okkar.

http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=284
Nýja starfið húsbóndans. - 2007-12-02 23:21:35 2007-12-02 23:21:35 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=283

Hjörtur hefur störf á nýjum stað.

Hættur að smíða alla daga, og kominn í sparigallanum inn á Veðurstofu.

Hvað þar á að gera er ekki alveg ljóst, en vitað að það er tölvutengt á einhvern hátt, allavega er starfsheitið Kerfisstjóri.

Þetta bar allt afar brátt að. Í kringum 15 nóv hringdi síminn og var það tölvudeildarstjórinn að spyrja hvort karlinn væri til í að koma í vinnu hjá hinu opinbera. Fyrir sakir kulda og bleytu þann daginn var viljinn meiri en oft annars, og var samningum fram haldið næsta dag og síðan aftur fáeinum dögum síðar, sem leiddi af sér að samningar náðust.

Karlinn skellir sér svo í sparigallanum í vinnuna 3. des.

http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=283
Endurbætur á baði - 2007-12-02 23:12:25 2007-12-02 23:12:25 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=282

Nú lét karlinn verða af því og flotaði og flísalagði baðherbergið. Við skruppum í Byko og fundum svona ljómandi fallegar flísar. Þær voru bornar heim ásamt öllu tilheyrandi, og  byrjað að rífa allt út af baðinu.

Síðan hófst uppbyggingin. Fyrst þurfti að flota í gólfið til að jafna það út, og fylla upp í "fúgurnar" í munstursteypunni sem var á gólfinu.

Því næst tók við flísalögnin. Til eru ýmsar misauðveldar og fljótlegar aðferðir, og var að sjálfsögðu valið að fara þá erfiðustu og tímafrekustu. Árangurinn er sá að gólfið er nú hreinlega svakalega flott, allt lagt í 45° með slíkum skurði sem því fylgir.

Næst er síðan að parketleggja afganginn af neðri hæðinni. Það er svipað at, þarf bara meira af öllu, sérstaklega peningum.

http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=282
Búið að skíra - 2007-10-10 17:43:11 2007-10-10 17:43:11 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=281

Jæja, nú er búið að skíra hana Arnbjörgu.  Það lá auðvitað beinast við að gera það bara hérna heima í stofu. Hún var jú getin heima og fædd heima.  Nánustu ættingjar, langömmur, ömmur,afar, systkini foreldranna og þeirra börn voru viðstödd, og með heimillisfólkinu urðu þetta 50 manns.

Því miður gleymdi ég alveg að taka upp myndavélina og því á ég engar haldbærar ljósmyndir til að sýna.  Ég auglýsi því hér með eftir myndum að skírnarbarninu, og líka öðrum myndum úr veislunni.

http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=281
Afmæli - 2007-10-03 12:06:14 2007-10-03 12:06:14 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=280

Hún Marín okkar á afmæli í dag.  Núna er hún orðin 17 ára. Það er ótrúlegt því það er svo stutt síðan hún var bara oggolítil písl sem saug þumalputtann.

Til hamingju með afmælið elskan mín og haltu áfram að vera sama dúllan og þú hefur alltaf verið.

 

http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=280
Breytingar í gangi - 2007-10-03 11:11:35 2007-10-03 11:11:35 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=279

Nú er ég að vinna í því að uppfæra kerfið sem er á bak við vefrun.com.  Undirbúningurinn að þessu hefur tekið dágóðan tíma og skýrir líka bloggleysið hjá mér þar sem ekki var hægt að skrifa blogg á meðan.   Uppfærslunni er ekki alveg lokið ennþá en það verður gert eftir því sem tími vinnst til.  

 Í sumar festi ég kaup á léninu vefrun.net og mun það fá það hlutverk að birta svona yfirlit yfir það helsta sem er að gerast á vefjunum okkar.    ...en eins og allt annað þá  verður það bara að bíða þar til tími vinnst til.

http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=279
Verslunnarmannahelgin - 2007-08-08 17:02:50 2007-08-08 17:02:50 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=278

79IMG_7755_upload Þetta verður stutt blogg í dag og aðal efnið er þessi mynd sem náðist af óhappi sem varð á flugeldasýningunni á Akureyri. Aðrar myndir koma seinna en þær eru því miður ekki komnar í hús þar sem myndavélin var tæmd á nýju fartölvuna hennar Marínar.

http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=278
Vefrún.com á kínversku? - 2007-07-25 10:40:01 2007-07-25 10:40:01 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=277 Ég rak augun í þetta í loggunum mínum í morgun. Lítur þetta ekki svoldið kunnuglega út? Það er þó ekki í fyrsta skipti sem ég sé svona lagað, einhver sem hefur tekið einhverja síðu héðan af Vefrúnu og vistað hana á sínu vefsvæði. Oftast er þetta nú bara saklaust, þar sem í langflestum tilfellum fólk er að skoða kóðan og athuga hvernig hitt og þetta er gert... og mig grunar að það sé tilfellið hér, án þess ó að ég geti verið viss. Það væri óneitanlega gott að geta allavega lesið textan þarna. Ég prufaði líka þar sem mappan sem mín síða var í hafði tölunna þrjá í nafninu, að breita henni í tvo. Þar kemur upp síða þar sem hluti af textanum er á bjagaðri ensku. Ef ég skil þetta rétt þá er "eigandi síðunnar" að bjóða fólki að kaupa viðkomandi síðu.... Án þess að vera viss, þá finnst mér eins og ég hafi séð þetta útlit annars staðar nýlega, e.t.v á CSSmaniu eða jafnvel á þessarri síðu. Síðar nefnda síðan er kínversk útgáfa af CSSmaniu og fyrir nokkru var Vefrun.com sett þangað inn (ekki af mér þó). Sjálf hef ég lært flest ef ekki allt í xHTML og CSS, sem ég kann með því að skoða annarra manna kóða... og ég mæli með því við fólk ef það vill læra að skrifa xHTML/CSS sljálft. Ég reindar minnist þess ekki að hafa vistað neitt svoleiðis á vefsvæði en það er svo sem alveg skiljanlegt að fólk geri það. Ég hef svo sem ekkert svakalegar áhyggjur af þessu. Alla vega ekki á meðan ég veit ekki með vissu hvort þessi aðilli er að græða á minni hönnun. Ég vona að svo sé þó ekki... http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=277 Leti og meiri leti - 2007-06-22 16:27:31 2007-06-22 16:27:31 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=275 Það verður að segjast að ég hef ekki verið í miklu blogg stuði nýlega. Hins vegar hef ég, þegar ég á lausan tíma, verið að vinna í vefumsjónar kerfinum mínu og bæta það. Annars er alveg nóg að gera á öllum vígstöðvum og þá ekki síst bara að sinna móðurhlutverkinu þó svo að núna síðastliðna daga hafa bara 4 börn verið heima. Valdi og Marín fóru norður um síðustu helgi og tóku hana Melkorku með. Hún fékk svo að verða eftir hjá ömmu og afa á Svalbó og þar hefur hún verið síðan. Í morgun var farið með Arnbjörgu og Önnu í Keflavíkina en þar áttu þær systur að mæta til læknisins í ungbarnaeftirlitinu. Arnbjörg er nú orðin 4190 gr og 56 sm. Hún er afskaplega góð stúlka, sefur þegar hún að að sofa og drekkur og kúkar eins og herforingi. Hún er líka farin að hjala og brosa til okkar og æfa sig í því að bræða okkur hérna. Anna fékk sína skoðun líka, en hún reindist vera 13.800 gr og 91,5 sm. Birkir og Stefán voru bara heima á meðan og pössuðu hvorn annan. http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=275 Flottur hópur - 2007-06-02 13:33:49 2007-06-02 13:33:49 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=273 Héðan er allt gott að frétta... Helgi, sem er búin að vera fyrir norðan í vinnu á Réttarhóli hjá afa sínum kom í Vogana seint á miðvikudagskvöld. Hann hafði þá ekki enn séð hana Arnbjörgu og þess vegna fékk að fara í nokkurra daga frí. Þegar Marín kom í Vogana líka notuðum tækifærið og stilltum barnahópnum okkar upp í stofunni og tókum slatta af myndum. Ég mun setja þær inn fljótlega, eða allavega hluta af þeim, en læt duga í bili að láta eina þeirra fylgja með þessarri bloggfærslu. Arnbjörg litla gerir allt sem hún að gera; sofa, drekka og kúka. Hún spallar líka dálítið við alla þá sem vilja og ég er ekki frá því að hún setji upp bros öðru hverju ásamt með einstaka "Gruhh" hljóði. Hún virðist gera þetta mest þegar hún Melkorka er í augsýn en einnig er hún mjög hrifin af honum Stefáni... og hann af henni. Stefán má ekki heyra hljóð frá henni, þá er hann annað hvort komin til hennar til að athuga hvað sé að angra hana eða skipar einhverjum að fara nú að hugsa um hana. Síðast liðinn fimmtudag kom hún Karítas með storkapokan sinn og viktaði Arnbjörgu. Þá var hún orðin 3750 gr og hefur því þyngst vel síðan hún fæddist. Það verður gaman að sjá hvað hún hefur þyngst næst þegar hún verður viktuð en Karítas ætlar að koma aftur næsta fimmtudag. http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=273 Arnbjörg Hjartardóttir - 2007-05-15 18:13:14 2007-05-15 18:13:14 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=272 Dóttirin litla hefur fengið nafnið Arnbjörg. Ekki er aumt að vera nefnd í höfuðið á langömmu sinni. Til að vera viss hringdum við í Öddu ömmu og fengum formlegt leyfi fyrir því að nefna eftir henni. Þar sem engin önnur stúlka hefur verið nefnd eftir ömmu ættarlauk, héldum við kannski að það væri ekki vel séð, en öðru var nú nær. Adda amma taldi þetta heiður hinn mesta og tók hugmyndinni fagnandi. Þeir sem vilja sjá fleiri myndir af dömunni geta gramsað í ljósmyndavefnum, þar er ýmislegt að finna úr ljósmyndasafninu okkar. http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=272 ...og það var stelpa! - 2007-05-11 08:14:35 2007-05-11 08:14:35 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=271 Já það var stúlka! 3380 gr, 50 cm fædd 02:30. Um miðnættið kom Anna Rut ljósmóðir. Henni þótti allt vera komið í slíkan gír að hún hóaði í Guðrúnu vinkonu sína og vinnufélaga að koma og aðstoða, ef þyrfti. Skömmu síðar renndi Guðrún í hlað, og gátu leikar þá hafist. Allt gekk þetta eins og samkvæmt uppskrift, hríðar sem jukust og hörðnuðu, og leiddu á endanum til fæðingar sem gekk stórvel. Marín Ásta var viðstödd og veitti aðstoð, hugrökk og brött, þó ekki litist henni alltaf jafnvel á atið. Við erum enn aðeins að jafna okkur á því að röðin var brotin. Hingað til hafa strákar komið á víxl við stelpur, og kveðið svo rammt að því að það hvarflaði aldrei að okkur að annað gæti verið en að hér væri strákur á ferðinni. Ekki svo að skilja að við séum ósátt við stelpu, bara gapandi af undrun; hvernig gat þetta gerst? Nú er að finna til nafn á litlu dömuna, eitthvað fallegt, eins og hún sjálf. Set hér inn færslu þegar það finnst.
http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=271
41 vika +1 dagur - 2007-05-06 17:26:05 2007-05-06 17:26:05 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=269 Vonandi er mér fyrirgefið að hafa ekki bloggað í gær, en núna er búið að flytja vinnuaðstöðuna mína (tölvuna og allt sem henni fylgir svona nokkurn vegin) í annað herbergi. "Gamla" tölvuherbergið verður nú gert að barnaherbergi fyrir Stefán og Önnu. Það var raunar alltaf upphaflega planið þegar við fluttum í fyrra sumar að þau myndu hafa þetta herbergi fyrir sig, enda man hann Stefán enþá eftir þeim fyrirætlunum og kallar herbergið stundum "herbergið mitt". Svo þetta venjulega ...alla vega ef við tökum mið af síðustu blogg færslum... þá er ekkert að gerast í bumbunni og við bíðum bara árfram í rólegheitunum... http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=269 40 vikur + 6 dagar - 2007-05-04 18:07:50 2007-05-04 18:07:50 http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=268 Ég var nú bara næstum búin að gleima að uppfæra hérna.... en eins og undanfarið.... þá er ekkert að gerast hjá bumbubúanum þannig það það er svo sem ekkert mikið til að segja frá hérna.... Helgi er nú komin heim úr sveitinni, frá ömmu og afa á Akri, en kemur til með að fara að vinna hjá afa sínum á Réttarhóli eftir helgina. Stefán er svo líklegast á leiðinni heim úr sveitinni með henni Guðrúnu sinni og eflaust ekkert sáttur við að þurfa að fara heim, ef ég þekki hann rétt... Það er nefnilega alltaf svo gaman í sveitinni. http://vefrun.com/index.php?blogg=s&frett_id=268