Flutningar í vændum

28fram

Við erum búin, eins og áður hefur verið greint frá hér, að kaupa okkur annað hús.
Húsið sem við búum í er orðið of lítið, jafnvel þó að lokið væri við alla stækkunina sem byrjað er á.

Ekki er ætlunin að flytja langt, heldur að fara ca 150 metra, niður í næstu götu.
Þar stendur á fallegum stað á sjávarlóð huggulegur kofi með miklu og fallegu útsýni yfir sjóinn og stapann, og Keflavík og það allt, og við ætlum að búa í þessum huggulega kofa.

Um mánaðamótin maí – júní flytjum við inn í húsið með allt okkar hafurtask og afkvæmi og byrjum að koma okkur fyrir. Þá verður líka lag að sækja þá hluta búslóðarinnar sem er innum allt hjá Björgu og Hildi, svo sem orgvélin góða og borðstofusettið fínasta sem við keyptum á dögunum.

Það er ekki til að kvíða því að koma dótinu fyrir, frekar er að óttast að finna hvert annað í þessu regin gímaldi sem húsið er, því nú erum við í 114 fm íbúð, en í nýja húsinu er hún ca 270 fm.

Á neðri hæðinni er eldhús, stofa, bað, 2 svefnherbergi, anddyri, hol, þvottahús, jú og bílskúr.
Á efri hæð eru 4 svefnherbergi, bað og stórt hol, þar sem stefnan er að hafa imbann og eitthvað slíkt.

Síðan er bílskúrinn þannig að ekkert vandamál á að vera að koma þar fyrir öllu því sem góðan bílskúr skal prýða s.s. 2 bílum, verkfærum, vinnuborði, hillurekkum og öðru bílskúrsdóti, tjaldvagni, vélsleða ( eða tveimur) og fleiru tilheyrandi.

Heimilisfangið verðandi er Akurgerði 12.

Smá uppfærsla í gangi.

Ég er að uppfæra smávegis. Vildi bara láta vita því það geta orðið smá ‘truflannir’ á síðunni í dag.

Rafmagnsleysi

Orkuveita Reykjavíkur sendi út tilkynningu um, að það verði rafmangslaust hjá okkur vegna vinnu í dreifistöð, aðfaranótt föstudagsins 21. mars nk. á tímabilinu 01:00 til 07:00. Bið biðjum þá næturhrafna sem kunna að ramba hingað þessa nótt velvirðingar þá þessum óþæindum.

Page 3 of 3123
© Copyright Vefrun.com