40 vikur + 4 dagar

Ó nei, ekkert barn enn þá…. og ekkert að gerast… og Anna Rut, ljósan mín á leiðinni til útlanda í fyrramálið og kemur aftur eftir viku!

…Og getiði nú hvað hún er að fara að gera…..!!

Hún er að fara á ráðstefnu fyrir ljósmæður sem eru í heimafæðingum!!!

Ég hitti hana í morgun og þá ætlaði hún að athuga hvort hún gæti ekki fundið einhverja aðra ljósu sem væri til í að koma heim og væri ekki að fara á ráðstefnuna…. Ég er ekkert farin að heyra frá henni enn þá svo það er bara að bíða….

Það er líka óvíst hvort ég geti haldið í krílið í þessa viku, eða þar til Anna Rut kemur heim aftur., þannig að maður neiðist víst til að fara í bíltúr þegar að stundinni kemur…. :|

40 vikur + 3 dagar

Að blogga er orðið að skilduverkefni þessa dagana, þannig að hér kemur það…

Það er ekkert að gerast, frekar en fyrri daginn…. Bumbubúinn ætlar eitthvað að láta bíða eftir sér, og raunar ekkert sá fyrsti í systkinahópnum sem gerir það.

Við skulum þó vona að eitthvað fari að gerast þar sem ljósan okkar er að fara til útlanda í vikulokin….

40 vikur + 2 dagar

Jæja, þá er kominn mánudagur 30. apríl og ekkert að gerast hérna…. Það þíðir líklegast það að ekki kemur þessi bumbubúi til með að fæðast í þessum mánuði.

Maí er reindar líka ágætis mánuður samt en ég á nú þegar eitt barn sem er fætt í maí og var þess vegna að vona að áætlunin myndi standast.

Kannski að maður reini að draga hana Marínu með mér út í göngutúr. Hún er annars hérna hjá okkur þessa dagana þar sem hún á ekki að mæta í skólan fyrr en næsta föstudag.

40 vikur + 1 dagur

Þetta er bara svona “snögg blogg” fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með bumbubúanum…

Það er bara ekkert að gerast hérna, þrátt fyrir göngutúra, snúðabakstur og tiltektir…

Það er því ekkert annað að gera en að halda áfram að bíða….

Dagurinn runninn upp

Áætlaður fæðingardagur er í dag, þannig að við skulum vona að eitthvað fari að gerast. Ekki það að ég hafi átt á þessum degi í fyrri fæðingum samt. Það voru bara Marín (2 vikur fyrr) og Melkorka (2 dagar fyrr) sem komu áður en þeirra dagur rann upp en hin létu öll bíða eftir sér…. Helgi lengst eða um 2 vikur en hin svona 2- 5 daga…

Nú á dögunum hafði ég samband við eina góða konu hérna í sveitarfélaginu. Þessi kona er ljósmóðir og eftir síðustu tvær fæðingar hefur hún komið heim til okkar til að fylgjast með fyrstu vikuna, þar sem ég hef ekki viljað liggja inni á sjúkrahúsi eftir að eiga.

Eiginlega kom upp hugmynd eftir að hún Anna littla fæddist, en hennar fæðing gett nokkuð hratt fyrir, svo varla hefði tekið því að fara á Heilsustofnun Suðurnesja. Ég var þar bara í einhverja þrjá klukkutíma.

Lesa meira»
Page 5 of 13« First...34567...10...Last »
© Copyright Vefrun.com