Nei, það er ekki komið barn!

Littli bumbubúinn virðist ætla að halda sig inni í hlýjunni aðeins lengur… en áætlaður fæðigardagur var síðastliðinn laugardag.

Nú hringja ættigjarnir í stríðum straumum… a.m.k einu sinni á dag… og spyrja hvort ekki sé nú komið barn. …Best er þegar þau spyrja ‘Ætlar þú ekki að fara að koma þessu barni út? Þú verður að fara að drífa þig!’

‘hmmm…’

…ég veit ekki betur en að þetta fari bara af stað svona af sjálfu sér (allavega í flestum tilfellum og öllum fyrri fæðingum sem ég hef tekið þátt í)… og ekki þegar ég vil að það geri það.

Margar konur fara út að ganga, ganga jafnvel upp og niður stiga, eða nota önnur ráð til að koma þessu af stað. Mín reinsla er hinsvegar sú að það gerir ekkert fyrir mig nema ef vera skildi að fresta hlutunum. :-|

Ég skal alveg játa það, að það væri nú gaman að fá að sjá littlu dúlluna með berum augum, og geta jafnvel lagt hana frá sér og þurfa ekki að bera hana um allt… en það gerist á endanum… bara að vera bíða og vera þolinmóð.

Helgin liðin

…og þá er kominn mánudagur.
Á laugardaginn komu afi og amma að norðan og við vorum búin að bjóða þeim í mat. Við þurftum að því bruna í bæjinn á laugardagsmorguninn og versla í matinn og einnig kaupa fermigarkort og pappír fyrir sunnudaginn, en við vorum boðin í fermigarveislu hjá henni Heiði uppi á Skaga.

Þegar við komum heim úr verslunnar ferðinni á laugardag var bara faríð í það að taka til í húsinu og auðvitað undirbúa matinn… en við höfðum ákveðið að hafa bara lambalæri í matinn. Svo komu gestirnir, amma og afi, og Signý. Valdi og Marín komu líka en þegar þau vita af einhverju góðu í matinn láta þau sig sko ekki vanta ;)

Á sunnudeginum var ekið upp á Skaga. Helgi Fannar hitti okkur í veislunni og virtist hann hafa haft mjög gaman að Norðan verðinni. (psst: jafnvel orðið smá “skotinn”)

Fermigarveislan var flott og fín og fermigarbarnið líka… En hér eru nokkrar myndir af skvísunni.

Vikan að klárast

Jæja, nú er þessi vika að verða búin. Helgi Fannar er farinn til Akureyrar til að fara á Söngvakeppni Framhaldsskkólanna og Marín farin til Valda síns. Það virðist bara hálftómlegt í kotinu þó svo að við séum fimm eftir.

Ég er búin að vera eitthvað svo andlaus í dag í grafíkinni og öllu vefstöffinu (vinnunni) að afrakstur dagsins í dag er nú ekki upp á marga fiska. Kannski er skortur á næilega löngum svefni í vikunni farinn að segja til sín en þetta er ein af þeim vikum (sem raunar hafa verið nokkrar í röð upp á síðkastið) þar sem maður dauðöfundar fólk sem leggst bara upp í rúm og sofnar strax. Það er nefnilega þannig með mig að þó að ég sé drullu sifjuð er eins og um leið og ég legg höfuðið á koddann ‘vakna’ ég bara og er ekkert sifjuð lengur og maður sofnar bara ekkert fyrr en eftir dúk og disk sama hvað maður reynir.

Page 13 of 13« First...910111213
© Copyright Vefrun.com