Jæja… – [Stefán]
- Þann 14. júlí 2003
- Skráð af admin
- í Stefán
0
Hún mamma er nú farin að finna fyrir einhverjum ummerkjum um að ég vilji fara að komast út. Raunar byrjaði hún aðeins að finna fyrir því þegar hún vaknaði um 7 leytið í gærmorgun en ég veit ekki… Mér finnst eitthvað svo gott að vera hérna inni… og ég er ekkert alveg viss um það ennþá að ég vilji fara héðan strax.
Hún Marín systir mín er samt orðin svoldið leið á að bíða og er alltaf að spyrja mömmu hvort ég sé ekki alveg að koma og í gær þegar á leið daginn og mamma og pabbi sögðu henni að mamma væri byrjuð að finna fyrir einhverju þá varð hún bara ennþá óþolinmóðari.
Ég er ekkert að hlusta á hana þegar hún er að kalla á mig og segja mér að fýta mér og líka þótt hún segir að ég sé ekkert skemmtilegt barn. Mér finnst ég alveg í lagi að vera hérna aðeins lengur og það finnst konunni á spítalanum líka.
Mamma og pabbi fóru með mig í bíltúr til Keflavíkur og fóru að hitta konuna á spítalanum því að mamma hélt að ég væri bráðum að koma og sagði að það væri fjórar mínútur á milli eitthvað… ég veit samt ekkert hvað það þýðir og mér er alveg sama. Ég veit bara að þegar þetta gerist er eitthvað skrítið að gerast í kringum mig.. og þegar við komum í bílinn hætti það alveg… og konan sagði að við gætum alveg farið aftur heim og það var gaman því mér þykir svo skemmtilegt að fara í bíltúr og þá hreyfi ég mig voðalega mikið.
Pabbi og mamma og allir hinir verða bara að bíða róleg því ég ætla að vera bumbulingur örlítið lengur.
Hæ hæ [Stefán]
- Þann 5. maí 2003
- Skráð af admin
- í Stefán
0
Gaman að þú skyldir koma.
Ég er ennþá í hlýjunni innan í bumbunni á mömmu og ætla helst ekkert að koma þaðan út fyrr en um miðjan júlí.
Mér líður svo vel hérna inni, og ég sprikla mikið. Stundum heldur mamma mín að ég ætli bara að brjótast út í gegnum bumbuna, svona eins og ungi sem brýst út úr eggi, en ég er bara að æfa mig því maður verður að vera sterkur og til í slaginn þegar maður fæðist.
Ég á hvorki meira né minna en fjögur systkini og þeim finnst ofsalega gaman að setja höndina sína á bumbuna hennar mömmu þegar ég er að sprikla. Samt finnst þeim þetta allt saman líka vera voða skrítið.
Mamma og pabbi, og auðvitað sistskyni mín líka, eiga heima í Vogum á Vatnsleysuströnd, en þau fluttu þangað í ágúst á síðasta ári. Þeim finnst öllum voða gott að eiga heima þar, og miklu betra en að eiga heima í Reykjavík. Ég held bara að mér eigi eftir að finnast það líka, þótt að ég hafi aldrei átt heima annars staðar.
Fjölgun
- Þann 20. mars 2003
- Skráð af admin
- í Stefán
0
Þar sem þetta er orðið altalað innan fjölskyldu Vefrúnar, teljum við tímabært að koma með smá tilkinningu. Jú mikið rétt. Það er von á nýjum meðlim í fjölskylduna á sumarmánuðum… eða einhverntíman í Júlí n.k. Þá munu meðlimir Vefrúnar verða 7 talsins, en þó er talið að starfskraftar þessa nýja aðila munu að öllum líkindum ekki nýtast fyrr en eftir nokkur ár þar sem leikni með lyklaborð og mús mun ekki vera fyrir hendi fyrst um sinn.