Sautján ár!
- Þann 17. desember 2005
- Skráð af admin
- í Börnin, Helgi
0
Jæja, í dag eru 17 ár síðan ég eignaðist mitt fyrst barn! Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða og littla nýfædda, 53 sentimetra langa barnið fljótt að stækka upp í næstum 2 metra, og komast á bílprófs aldurinn!
Innilega til hamingju með daginn Helgi minn og þúsund kossar frá mömmu ;). …og farðu varlega í umferðinni….
Fín frú
- Þann 7. desember 2005
- Skráð af admin
- í Börnin, Fjölskyldan, Stefán, Tinna
0
Það hefur kannski komið framm hér áður að henni Tinnu okkar finnst hún vera algjör prinsessa. Jú, kannski er hún það bara þessi elska. Meðfilgjandi mynd var tekin af henni um síðast liðna helgi, þar sem hún ákvað að hún væri manneskja.
Hann Stefán var að horfa á uppáhalds DVD diskinn sinn þessa stundina, The Incredibles og þar sem Tinna er mikil selskaps vera, þá vildi hún halda sig nálægt honum og því var það við hæfi að setjast bara í stofu sófan eins og fín dama.
Stefán láttu vera !!
- Þann 22. september 2005
- Skráð af admin
- í Börnin, Stefán
0
Stefán láttu vera !!!!
Þetta er sennilega það sem oftast er sagt hér á heimilinu þegar liðið er á daginn.
Stefán er eins og aðrar heimsins skeppnur og verður lúinn og þreyttur þegar líður á daginn.
Ólíkt mörgum öðrum skeppnum slappast hann ekki, heldur fyllist fjöri, eða ærslum þegar hann þreytist og tætir af hjartans lyst.
Þar sem á heimilinu er allnokkur fjöldi eldri einstaklinga en Stefán eru allmargir tilbúnir að garga:
Stefán láttu vera !!!
Dótið mitt
- Þann 24. ágúst 2005
- Skráð af admin
- í Anna, Börnin, Fjölskyldan
0
Skemmtilegasta dótið sem ég á er ekkert venjulegt dót. Það er nefnilega vinstri höndin mín. Ég get setið í stólnum mínum eða legið á bakinu og horft á höndina mína lengi lengi.
Höndin bara birtist allt í einu. Hún stóð beint út í loftið og ég tók eftir henni. Svo, stundum þá hreifist hún svoldið eða hverfur alveg. Hún hreifist hún svo skemmtilega stundum, svo á morgnanna áður en pabbi fer á fætur er líka gaman að leika við hann. Ég horfi á hann og brosi og tala við hann og hann opnar stundum munninn sinn alveg upp á gátt og ég reyni að setja höndina upp í hann.
Það var alveg rosalega merkileg uppgötvun þegar ég gerði þetta í fyrsta skipti. Ég varð alveg hissa og rak upp stór augu. Reindar verð ég enn svoldið hissa á sviðin þegar þetta tekst hjá mér þetta er nefnilega alveg svakalega erfitt.
Aftur í skólann
- Þann 24. ágúst 2005
- Skráð af admin
- í Börnin, Fjölskyldan
0
Í dag er fyrsti skóladagurinn hjá Melkorku og Helga. Þau áttu bæði að mæta klukkan 8. Marín og Birkir verða þó að bíða þar til á föstudaginn en nýja viðbótarbyggingin, sá hluti skólans sem þau eiga að vera í í vetur er ekki tilbúinn. Það er ekkert víst (nánast öruggt að þetta verður ekki tilbúið á föstudaginn) en þau eiga að mæta og þá verður farið í göngutúr ef veður leifir, annars verða þau bara send heim aftur.
Við fórum annars í gær í bæjinn og vorum að versla það skóladót sem upp á vantaði, eða því sem næst. Við ætluðum að vera sniðug og kaupa bækur fyrir Helga á skiptibókamörkuðunum í bænum til að fá þær kanski aðeins ódýrari. Hins vegar fundum við bara eina bók sem var á listanum hans, en það virðist bara alltöðruvísi bækur sem eru notaðar í FSS en í skólunum í bænum.
Á mánudaginn mátti littlu muna að við misstum hana Guðrúnu okkar og littla Ólaf :( Þau voru að keyra rétt hjá kaffitár í Njarðvík og lentu í bílslysi. Bíllinn fór alveg í döðlu og það er alveg ótrúlegt að þau skildu sleppa svona vel. Ólafur littli var bara með skrámur í andlitinu eftir glerbrot. Mamma hans fékk líka glerbrot yfir sig og er öll marin og blá.
Það eru myndir af bílnum þeirra á heimasíðunni hans Ólafs á barnalandi. Þar getið þið séð hvernig bíllinn var eftir þetta. Það skal tekið fram að Ólafur var í bílstólnum sínum fyrir aftan farþegasætið, sem betur fer! Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda ef hann hefði verið fyrir aftan mömmu sína. Þá væri hann líklega ekki hér :(


