Arnbjörg – litla söngkonan okkar
- Þann 15. júní 2011
- Skráð af admin
- í Arnbjörg, Fjölskyldan
0
Henni Öddu okkar finnst afskaplega gaman að syngja (eins og stóru systrum hennar, Marínu og Melkorku) og reindar er hún alltaf syngjandi. Stundum situr hún líka fyrir framan flygilinn og spilar og syngur. Ég á enn eftir að ná því á mynd, en ég fékk að taka eitt stutt myndband í dag þar sem hún var að syngja uppi í herberginu hennar Melkorku. Þetta er lag sem hún Melkorka hefur mikið sungið og eitt af þeim lögum sem Öddu finnst afskaplega gaman að syngja.
Takið sérstaklega eftir handahreyfingunum hjá henni, þ.e.a.s. þegar það lítur út eins og hún sé að setja hárið bakvið eyrað…. Þetta gerir hún mjög oft eftir að hún hefur sungið háan tón. :)
Búið að skíra
- Þann 10. október 2007
- Skráð af admin
- í Arnbjörg
0
Jæja, nú er búið að skíra hana Arnbjörgu. Það lá auðvitað beinast við að gera það bara hérna heima í stofu. Hún var jú getin heima og fædd heima. Nánustu ættingjar, langömmur, ömmur,afar, systkini foreldranna og þeirra börn voru viðstödd, og með heimillisfólkinu urðu þetta 50 manns.
Því miður gleymdi ég alveg að taka upp myndavélina og því á ég engar haldbærar ljósmyndir til að sýna. Ég auglýsi því hér með eftir myndum að skírnarbarninu, og líka öðrum myndum úr veislunni.
Arnbjörg Hjartardóttir
- Þann 15. maí 2007
- Skráð af admin
- í Arnbjörg
0
Dóttirin litla hefur fengið nafnið Arnbjörg.
Ekki er aumt að vera nefnd í höfuðið á langömmu sinni. Til að vera viss hringdum við í Öddu ömmu og fengum formlegt leyfi fyrir því að nefna eftir henni.
Þar sem engin önnur stúlka hefur verið nefnd eftir ömmu ættarlauk, héldum við kannski að það væri ekki vel séð, en öðru var nú nær.
Adda amma taldi þetta heiður hinn mesta og tók hugmyndinni fagnandi.
Þeir sem vilja sjá fleiri myndir af dömunni geta gramsað í ljósmyndavefnum, þar er ýmislegt að finna úr ljósmyndasafninu okkar.
…og það var stelpa!
- Þann 11. maí 2007
- Skráð af admin
- í Arnbjörg, Fjölskyldan, Tilkynningar
0

Já það var stúlka! 3380 gr, 50 cm fædd 02:30.
Um miðnættið kom Anna Rut ljósmóðir. Henni þótti allt vera komið í slíkan gír að hún hóaði í Guðrúnu vinkonu sína og vinnufélaga að koma og aðstoða, ef þyrfti. Skömmu síðar renndi Guðrún í hlað, og gátu leikar þá hafist. Allt gekk þetta eins og samkvæmt uppskrift, hríðar sem jukust og hörðnuðu, og leiddu á endanum til fæðingar sem gekk stórvel.
Marín Ásta var viðstödd og veitti aðstoð, hugrökk og brött, þó ekki litist henni alltaf jafnvel á atið.
Við erum enn aðeins að jafna okkur á því að röðin var brotin.
Hingað til hafa strákar komið á víxl við stelpur, og kveðið svo rammt að því að það hvarflaði aldrei að okkur að annað gæti verið en að hér væri strákur á ferðinni. Ekki svo að skilja að við séum ósátt við stelpu, bara gapandi af undrun; hvernig gat þetta gerst?
Nú er að finna til nafn á litlu dömuna, eitthvað fallegt, eins og hún sjálf.
Set hér inn færslu þegar það finnst.