Vefrún.com á kínversku?
- Þann 25. júlí 2007
- Skráð af admin
- í Uncategorized
0
Ég rak augun í þetta í loggunum mínum í morgun. Lítur þetta ekki svoldið kunnuglega út?
Það er þó ekki í fyrsta skipti sem ég sé svona lagað, einhver sem hefur tekið einhverja síðu héðan af Vefrúnu og vistað hana á sínu vefsvæði.
Oftast er þetta nú bara saklaust, þar sem í langflestum tilfellum fólk er að skoða kóðan og athuga hvernig hitt og þetta er gert… og mig grunar að það sé tilfellið hér, án þess ó að ég geti verið viss. Það væri óneitanlega gott að geta allavega lesið textan þarna.
Ég prufaði líka þar sem mappan sem mín síða var í hafði tölunna þrjá í nafninu, að breita henni í tvo. Þar kemur upp síða þar sem hluti af textanum er á bjagaðri ensku. Ef ég skil þetta rétt þá er “eigandi síðunnar” að bjóða fólki að kaupa viðkomandi síðu…. Án þess að vera viss, þá finnst mér eins og ég hafi séð þetta útlit annars staðar nýlega, e.t.v á CSSmaniu eða jafnvel á þessarri síðu. Síðar nefnda síðan er kínversk útgáfa af CSSmaniu og fyrir nokkru var Vefrun.com sett þangað inn (ekki af mér þó).
Sjálf hef ég lært flest ef ekki allt í xHTML og CSS, sem ég kann með því að skoða annarra manna kóða… og ég mæli með því við fólk ef það vill læra að skrifa xHTML/CSS sljálft. Ég reindar minnist þess ekki að hafa vistað neitt svoleiðis á vefsvæði en það er svo sem alveg skiljanlegt að fólk geri það.
Ég hef svo sem ekkert svakalegar áhyggjur af þessu. Alla vega ekki á meðan ég veit ekki með vissu hvort þessi aðilli er að græða á minni hönnun. Ég vona að svo sé þó ekki…
Leti og meiri leti
- Þann 22. júní 2007
- Skráð af admin
- í Fjölskyldan
0
Það verður að segjast að ég hef ekki verið í miklu blogg stuði nýlega. Hins vegar hef ég, þegar ég á lausan tíma, verið að vinna í vefumsjónar kerfinum mínu og bæta það. Annars er alveg nóg að gera á öllum vígstöðvum og þá ekki síst bara að sinna móðurhlutverkinu þó svo að núna síðastliðna daga hafa bara 4 börn verið heima.
Valdi og Marín fóru norður um síðustu helgi og tóku hana Melkorku með. Hún fékk svo að verða eftir hjá ömmu og afa á Svalbó og þar hefur hún verið síðan.
Í morgun var farið með Arnbjörgu og Önnu í Keflavíkina en þar áttu þær systur að mæta til læknisins í ungbarnaeftirlitinu.
Arnbjörg er nú orðin 4190 gr og 56 sm. Hún er afskaplega góð stúlka, sefur þegar hún að að sofa og drekkur og kúkar eins og herforingi. Hún er líka farin að hjala og brosa til okkar og æfa sig í því að bræða okkur hérna.
Anna fékk sína skoðun líka, en hún reindist vera 13.800 gr og 91,5 sm.
Birkir og Stefán voru bara heima á meðan og pössuðu hvorn annan.
Flottur hópur
- Þann 2. júní 2007
- Skráð af admin
- í Börnin
0
Héðan er allt gott að frétta… Helgi, sem er búin að vera fyrir norðan í vinnu á Réttarhóli hjá afa sínum kom í Vogana seint á miðvikudagskvöld. Hann hafði þá ekki enn séð hana Arnbjörgu og þess vegna fékk að fara í nokkurra daga frí.
Þegar Marín kom í Vogana líka notuðum tækifærið og stilltum barnahópnum okkar upp í stofunni og tókum slatta af myndum. Ég mun setja þær inn fljótlega, eða allavega hluta af þeim, en læt duga í bili að láta eina þeirra fylgja með þessarri bloggfærslu.
Arnbjörg litla gerir allt sem hún að gera; sofa, drekka og kúka. Hún spallar líka dálítið við alla þá sem vilja og ég er ekki frá því að hún setji upp bros öðru hverju ásamt með einstaka “Gruhh” hljóði. Hún virðist gera þetta mest þegar hún Melkorka er í augsýn en einnig er hún mjög hrifin af honum Stefáni… og hann af henni.
Stefán má ekki heyra hljóð frá henni, þá er hann annað hvort komin til hennar til að athuga hvað sé að angra hana eða skipar einhverjum að fara nú að hugsa um hana.
Síðast liðinn fimmtudag kom hún Karítas með storkapokan sinn og viktaði Arnbjörgu. Þá var hún orðin 3750 gr og hefur því þyngst vel síðan hún fæddist. Það verður gaman að sjá hvað hún hefur þyngst næst þegar hún verður viktuð en Karítas ætlar að koma aftur næsta fimmtudag.
Arnbjörg Hjartardóttir
- Þann 15. maí 2007
- Skráð af admin
- í Arnbjörg
0
Dóttirin litla hefur fengið nafnið Arnbjörg.
Ekki er aumt að vera nefnd í höfuðið á langömmu sinni. Til að vera viss hringdum við í Öddu ömmu og fengum formlegt leyfi fyrir því að nefna eftir henni.
Þar sem engin önnur stúlka hefur verið nefnd eftir ömmu ættarlauk, héldum við kannski að það væri ekki vel séð, en öðru var nú nær.
Adda amma taldi þetta heiður hinn mesta og tók hugmyndinni fagnandi.
Þeir sem vilja sjá fleiri myndir af dömunni geta gramsað í ljósmyndavefnum, þar er ýmislegt að finna úr ljósmyndasafninu okkar.
…og það var stelpa!
- Þann 11. maí 2007
- Skráð af admin
- í Arnbjörg, Fjölskyldan, Tilkynningar
0

Já það var stúlka! 3380 gr, 50 cm fædd 02:30.
Um miðnættið kom Anna Rut ljósmóðir. Henni þótti allt vera komið í slíkan gír að hún hóaði í Guðrúnu vinkonu sína og vinnufélaga að koma og aðstoða, ef þyrfti. Skömmu síðar renndi Guðrún í hlað, og gátu leikar þá hafist. Allt gekk þetta eins og samkvæmt uppskrift, hríðar sem jukust og hörðnuðu, og leiddu á endanum til fæðingar sem gekk stórvel.
Marín Ásta var viðstödd og veitti aðstoð, hugrökk og brött, þó ekki litist henni alltaf jafnvel á atið.
Við erum enn aðeins að jafna okkur á því að röðin var brotin.
Hingað til hafa strákar komið á víxl við stelpur, og kveðið svo rammt að því að það hvarflaði aldrei að okkur að annað gæti verið en að hér væri strákur á ferðinni. Ekki svo að skilja að við séum ósátt við stelpu, bara gapandi af undrun; hvernig gat þetta gerst?
Nú er að finna til nafn á litlu dömuna, eitthvað fallegt, eins og hún sjálf.
Set hér inn færslu þegar það finnst.

