Í fréttum er þetta helst…

53IMG_3614a

Jæja, núna er bara komin júlí. Þó svo að veðrið sé ekki alslæmt í dag þá mætti sjást meira til sólarinnar og að mínu mati mætti hitastigið hækka um einn tug eða svo. Þá væri þetta loks að mínu skapi.

Ég ætlaði nú ekki að tala um veðrið. Það er nú samt einu sinni svo að þegar maður hefur ekkert krassandi að segja þá getur verið gott að grípa á það ráð að gera það.

Annars er afskaplega lítið að gerast hjá okkur hérna. Það er búið að pakka fullt af dóti ofan í kassa og lítið annað eftir en það sem maður þarf til daglegra nota. Hillur og skápar standa nánast tómir og það er ekki laust við að það bergmáli í kofanum.

Síðastliðna helgi fengum við að fara með nokkra kassa með dóti í Akurgerðið og auk þess var borðstofusettinu okkar (sem hefur verið í geymslu hjá henni Hildi) skellt þangað inn. Málið var nefnilega að herbergið hennar Marínar var orðið frekar fullt. Þar hafði öllum kössunum verið komið fyrir till þess að litlu stýrin, Anna og Stefán, myndu nú ekki slasa sig, eða skemma innihald kassana. Núna viku seinna er herbergið að fyllast aftur þó svo að ekki hafi unnist mikill tími til að pakka mörgu, þar sem ég hef verið að vinna dágóðan slatta þessa vikuna.

Já, og svo tókst mér líka loksins að koma einu nýju útliti upp á síðuna. Það er smávegis eftir að laga til, sérstaklega fyrir vandræða gemsan InternetExplorer, en annars er ég bara nokkuð ánægð með útkomun.

Meðfylgjandi mynd var tekin í einni af gönguferð okkar hjóna, nánar tiltekið þann 27. júní sl. og auðvitað sést í húsið okkar góða, þó svo að það hafi nú ekki verið aðalmyndefnið í þetta sinn.

Fjölgun

33raekja_gudrunar_og_eggerts

Þessi ungi maður kom í heiminn kl 2:26 núna í nótt/morgun. Hann reyndist vera 3430 gr og 52 cm sem er oggolítið stærra en hann Ólafur Snær, stóri bróðir var þegar hann fæddist.

Elsku Eggert, Guðrún og Ólafur Snær. Innilega til hamingju með litla snúðinn ykkar.

Ég er kassadama

31kassar

Þessa síðustu daga hef ég fengið nýja skilgreiningu, að minnsta kosti samkvæmt mínum heittelskaða.

Ég er kassadama.

Þessi nýja skilgreining á mér er þó ekki í þeirri hefðbundu merkingu sem allir þekkja, þ.e.a.s, kassadama í verslun. Merkingin sem minn maður notar er að sjálfsögðu sú að núna geng ég um húsið og tæti dót út úr skápum og skúffum og treð ofan í pappakassa.

Eftir því sem rýmkast um í skápum og skúffum, myndast himinháar stæður af kössum, stórum og smáum, sem allir eru merktir með tilheyrandi merkinum; dót úr stofu, bækur, tölvudót o.s.frv. Nú er svo komið að allt er á rúi og stúi og ef einhver í fjölskyldunni ber fram spurninguna: “Hvar er…..?” þá eru 85% líkur á að svarið sem viðkomandi fær sé eitthvað á þá leið að búið sé að pakka því ofan í kassa og verði ekki tekið upp fyrr en í Akurgerðinu.

Tennur spennur

90anna_med_8_tennur

Síðustu daga hefur hún Anna litla verið að slefa enn meira en venjulega, svo mikið að það er hægt að vinda peysurnar hennar og samfelluna. Auk þess má sjá vatnsflauminn með berum augum því hann hefur verið næstum því ‘none-stop’ allan daginn.

Í gærkveldi kom svo skýringin á öllum þessum vatnsaga.

Hún Anna er komin með tönn númer sjö, og átta! Nánar tiltekið eru þetta jaxlar, báðir í efri góm, annar hægra megin og hinn vinstra megin.

Í tilefni af þessum merku tímamótum læt ég fylgja með nokkrar myndir af Önnu. Á efri myndunum sést Anna ganga á milli stóru sistkyna sinna, Helga og Marínar. Þessar myndir voru teknar í lok Apríl en þá var Anna að byrja að sleppa sér. Núna ráfar hún um allan daginn, syngjandi í þokkabót, nema kannski þegar hún borðar eða sefur.

Á neðri myndunum er svo Anna sitjandi við matarborðið, sem er hin uppáhalds iðja hennar (það að borða), og að sjálfsögðu varð að hafa eina mynd þar sem sést í tennurnar, þó svo að þessar séu ‘gamlar’. Það er kannski svolítið erfitt að mynda þessar nýju. ;)

Ekki örvænta!

Þeir sem leggja leið sína hingað á vefinn okkar munu eflaust taka eftir allnokkrum truflunum í dag og e.t.v næstu daga. Þessar truflannir stafa aðallega af því að ég er að taka í geng kóðan í útlitunum, bæði á þeim sem fyrir eru og nokkrum nýjum útlitum. Alla vega þegar þessu er lokið þá á að vera hægt að skipta um útlit án vandkvæða auk þess sem úrvalið verður allnokkuð meira en verið hefur.

Page 10 of 32« First...89101112...2030...Last »
© Copyright Vefrun.com