Af fólki og fé
- Þann 31. mars 2009
- Skráð af admin
- í Fjölskyldan
0
Af fólki:
Hjörtur er alltaf að vinna inni á Veðurstofu, ýmist í kerfisstjórn, eða sem eftirlitsmaður á vakt. Nóg er að gera í kerfisstjórn þar sem sinna þarf allmörgu við sameiningu Veðurstofunnar og Vatnamælinga í eina stofnun.
Sigrún er komin á leikskóla.
Kannski var kominn tími til að hún færi í leikskóla. Vinnan þar leggst vel í hana, margt skemmtilegt að læra og gera.
Stefán er alsæll í leikskólanum, þar sem hann byrjaði í fyrrasumar, en nú nýlega fékk Anna einnig pláss á sama leikskóla, þó á annarri deild sé. Adda er komin með loforð um pláss á leikskólanum, en það verður þó ekki fyrr en í sumar, þó ekki sé enn ljóst hvort það verður fyrir eða eftir sumarleyfi. Þangað til verður hún hjá LIndu sinni.
Melkorka og Birkir unglingast. Ekki þarf að fjölyrða um það.
Helgi heldur sig mest fyrir austan með Lilju sinni. Vinnur hjá Búaðföngum á Stórólfsvelli og býr ýmist hjá Helgu og Simma, eða ömmu sinni og afa á Akri.
Af fé:
Hundurinn er fluttur að heiman.
Öfugt við allmarga hunda sem hafa “flutt í sveitina”, þá flutti okkar hundur í þéttbýlið.
Marín og Valdi tóku Tinnu nefnilega til sín í vetur, og býr hún í þeirra einkarekna 3ja herbergja dýragarði.
Sem sagt: Allt í dandalafínu standi.
Í leikskóla er gaman
- Þann 21. mars 2009
- Skráð af admin
- í Fjölskyldan
0
Eiginlega ætti ég að vera að þurka af og taka til í húsinu en rassinn minn er bara ekki að vilja lyftast frá stólnum þessa stundina. Eina hljóðið sem ég heyri er suðið í uppþvottavélinni en annars er afskaplega hljótt.
Marín og Valdi komu hérna í gær og höfðu á brott með sér Melkorku, Stefán og Önnu, og Hjörtur og Adda eru saman úti í bílskúr að ditta að öldungnum (bifrieð heimilisins). Birkir er á sínum stað, hjá Árna frænda sínum…
Já… því er ég eiginlega bara ein í kotinu eins og stendur….
Fyrir þá sem ekki vita ákvað ég að fara að vinna á leikskóla sl. haust,… Hluti af starfinu er að finna nýjar hugmyndir um það sem hægt er að gera með börnunum. Um daginn var mér bennt á skemmtilega vefsíðu um tónlist. Ég hef afskaplega gaman af því að syngja með börnunum og því hef ég verið að skoða þessa síðu af miklum ákafa og spilað myndskeiðin og lögin til að læra þau.
Margt af þessu er reindar meira fyrir eldri börn en þau sem ég er að vinna með… mín eru, þau elstu rétt skriðin yfir 2ja ára afmælisdaginn…. en þau elska að syngja flest öll… tala nú ekki um… að dansa… þannig að ég er búin að finna margar hugmyndir þarna sem ég (og við á deildinni) getum notað.
Nú er bara að vona að ég geri ekki alla í kring um mig (aðra á heimillinu) klikkaða á allri þessarri barnatónlist… :)
Topp módel
- Þann 8. mars 2009
- Skráð af admin
- í Fjölskyldan, Melkorka
0
Hún Melkorka fékk að leika sér með fjarstýringuna mína. Ég skellti myndavélinni upp á þrífótinn og stillti hana eftir kúnstarinnar reglum…
Það komu margar flottar, og sumar nokkuð skondnar, myndir út úr þessu… Þetta urðu alls um 600 myndir. Slatti af þeim var úr fókus eða á einhvern annan hátt ónothæfar sem er ekkert óvenjulegt við þessar aðstæður, en ég var eiginlega hissa hversu mikill fjöldi mynda kom út úr þessu.
Ég er ekki enn búin að vinna allar þær myndir sem ég vil vinna, en hérna eru samt nokkrar:




Ég mun svo setja fleiri myndir úr þessarri töku síðar en áhugasamir munu geta skoðað þær á flickr