{cuteness}It's Been a Long Day

Ljósmyndun

Uppskriftir

Fjölskyldan

Forritun

Donec tincidunt

 

Archive for May, 2008

Hér sé líf….

May 28, 2008

Það hefur skelfilega lítið verið bloggað hérna undanfarið.  Þetta ku víst vera fyrsta blogg ársins!   Það er svosem ekkert mikið að ske hérna, annað en þetta vnejulega, vinna, borða, sofa, þannig að lífið hérna hefur kannski ekki gefið okkur mikið tilefni til bloggs.  

Það er nú engin breiting á því núna, þó svo að þessar línur birtast hér nú…. og ef til vill einhverjir sem velta því fyrir sér, hvers vegna í ósköpunum við erum að halda úti þessarri síðu.   Svarið við því er aðallega á nördíska vísu… þetta er jú bloggað á kerfi sem smíðað er af undirritaðri og er einfaldlega notað til prófanna og ýmiskonar tilrauna sem gætu komið viðskiptavinum til góðs. 

En nóg um það í bili….  Ljósmyndunnar dellan hefur síðustu mánuði tekið undirritaða heljargreipum og var nú dellan þó nokkur fyrir.  Síðan í desember á síðastliðu ári hef ég verið að taka þátt í sérstöku mynd-á-dag verkefni.   Menn gera þetta á marga vegu…. oftast er bara tekin mynd af einhverju skemmtilegu, ein á dag og svo myndin sent á Flickr….  Sum þessarra verkefna ganga líka út á það að taka sjálfsmyndir.  Verkefnið sem ég skráði mig á gengur hins vegar út á myndir af börnum.   

Ég lagði ekki út í að taka mynd á dag af öllum mínum, sérstaklega þar sem sum þeirra eiga það til að hlaupa í burtu ef þau sjá myndavélar.  Þess vegna valdi ég að taka bara myndir Önnu og Arnbjörgu.  

Hann Stefán var einn þeirra sem ekki vildu láta taka mynd af sér þegar ég byrjaði á verkefninu.   Á því hefur þó orðið allnokkur breiting… og má með sanni segja að nú, þegar þessi orð eru skrifuð, er mun auðveldara að taka myndir af honum en systrum hans.  Hann er jafnvel að gefa Önnu góða punkta í sambandi við pósur og annað í myndatökunni.