40 vikur + 4 dagar
- Þann 2. maí 2007
- Skráð af admin
- í Fjölskyldan
0
Ó nei, ekkert barn enn þá…. og ekkert að gerast… og Anna Rut, ljósan mín á leiðinni til útlanda í fyrramálið og kemur aftur eftir viku!
…Og getiði nú hvað hún er að fara að gera…..!!
Hún er að fara á ráðstefnu fyrir ljósmæður sem eru í heimafæðingum!!!
Ég hitti hana í morgun og þá ætlaði hún að athuga hvort hún gæti ekki fundið einhverja aðra ljósu sem væri til í að koma heim og væri ekki að fara á ráðstefnuna…. Ég er ekkert farin að heyra frá henni enn þá svo það er bara að bíða….
Það er líka óvíst hvort ég geti haldið í krílið í þessa viku, eða þar til Anna Rut kemur heim aftur., þannig að maður neiðist víst til að fara í bíltúr þegar að stundinni kemur…. :|
40 vikur + 3 dagar
- Þann 1. maí 2007
- Skráð af admin
- í Fjölskyldan
0
Að blogga er orðið að skilduverkefni þessa dagana, þannig að hér kemur það…
Það er ekkert að gerast, frekar en fyrri daginn…. Bumbubúinn ætlar eitthvað að láta bíða eftir sér, og raunar ekkert sá fyrsti í systkinahópnum sem gerir það.
Við skulum þó vona að eitthvað fari að gerast þar sem ljósan okkar er að fara til útlanda í vikulokin….