41 vika +1 dagur

Vonandi er mér fyrirgefið að hafa ekki bloggað í gær, en núna er búið að flytja vinnuaðstöðuna mína (tölvuna og allt sem henni fylgir svona nokkurn vegin) í annað herbergi.

“Gamla” tölvuherbergið verður nú gert að barnaherbergi fyrir Stefán og Önnu. Það var raunar alltaf upphaflega planið þegar við fluttum í fyrra sumar að þau myndu hafa þetta herbergi fyrir sig, enda man hann Stefán enþá eftir þeim fyrirætlunum og kallar herbergið stundum “herbergið mitt”.

Svo þetta venjulega …alla vega ef við tökum mið af síðustu blogg færslum… þá er ekkert að gerast í bumbunni og við bíðum bara árfram í rólegheitunum…

© Copyright Vefrun.com