40 vikur + 6 dagar

Ég var nú bara næstum búin að gleima að uppfæra hérna…. en eins og undanfarið…. þá er ekkert að gerast hjá bumbubúanum þannig það það er svo sem ekkert mikið til að segja frá hérna….

Helgi er nú komin heim úr sveitinni, frá ömmu og afa á Akri, en kemur til með að fara að vinna hjá afa sínum á Réttarhóli eftir helgina.

Stefán er svo líklegast á leiðinni heim úr sveitinni með henni Guðrúnu sinni og eflaust ekkert sáttur við að þurfa að fara heim, ef ég þekki hann rétt… Það er nefnilega alltaf svo gaman í sveitinni.

© Copyright Vefrun.com