40 vikur + 5 dagar

Fastir liðir eins og venjulega….

Frekar en fyrridaginn er ekkert að gerast annað en miklar hreyfingar á nóttunni eða í hvert skipti sem ég reini að leggja mig.

Ég minnist þess ekki að eldri krakkarnir hafi verið svona fjörug á þessu stigi meðgöngunnar. Pissublaðran notuð sem boxpúði, og bumban gengur í risa bylgjum…. og allt gert til að reka mömmu á fætur aftur…

Af örum í fjölskyldunni er það helst að frétta að hann Stefán Andri fór með henni Guðrúnu sinni í sveitina í gær, þannig að núna er hún Anna litla bara hálf einmana. Annars er hún samt voða róleg og góð þrátt fyrir allt… og vill helst bara kyssa mömmu sína allan daginn…

© Copyright Vefrun.com