40 vikur + 4 dagar

Ó nei, ekkert barn enn þá…. og ekkert að gerast… og Anna Rut, ljósan mín á leiðinni til útlanda í fyrramálið og kemur aftur eftir viku!

…Og getiði nú hvað hún er að fara að gera…..!!

Hún er að fara á ráðstefnu fyrir ljósmæður sem eru í heimafæðingum!!!

Ég hitti hana í morgun og þá ætlaði hún að athuga hvort hún gæti ekki fundið einhverja aðra ljósu sem væri til í að koma heim og væri ekki að fara á ráðstefnuna…. Ég er ekkert farin að heyra frá henni enn þá svo það er bara að bíða….

Það er líka óvíst hvort ég geti haldið í krílið í þessa viku, eða þar til Anna Rut kemur heim aftur., þannig að maður neiðist víst til að fara í bíltúr þegar að stundinni kemur…. :|

© Copyright Vefrun.com