40 vikur + 2 dagar
- Þann 30. apríl 2007
- Skráð af admin
- í Fjölskyldan
0
Jæja, þá er kominn mánudagur 30. apríl og ekkert að gerast hérna…. Það þíðir líklegast það að ekki kemur þessi bumbubúi til með að fæðast í þessum mánuði.
Maí er reindar líka ágætis mánuður samt en ég á nú þegar eitt barn sem er fætt í maí og var þess vegna að vona að áætlunin myndi standast.
Kannski að maður reini að draga hana Marínu með mér út í göngutúr. Hún er annars hérna hjá okkur þessa dagana þar sem hún á ekki að mæta í skólan fyrr en næsta föstudag.