Birkir Spæderboj
- Þann 30. maí 2003
- Skráð af admin
- í Birkir
0
Núna á hann Birkir heimasíðu… Þar eru að finna stuttar sögur sem hann skrifaði í skólanum í vetur. Fleyri sögur munu verða birtar þar í framtíðinni.
Draugurinn hinn mikli
- Þann 27. maí 2003
- Skráð af admin
- í Birkir, Sögur
0
Einu sinni var draugur sem hét Lúsifat. Hann er oft að hræða fólk sér til gaman.
Lúsifat finnst líka gaman að leika við hina draugana og að pota í fólk til þess að hræða það.
Einu sinni var Lúsifat að hræða fólk allan daginn svo fór hann heim að sofa.
Bangsi litli
- Þann 27. maí 2003
- Skráð af admin
- í Birkir, Sögur
0
Einu sinni var lítill bangsi. Hann hét Björn Bangsi. Honum fannst gaman í
fótbolta,körfubolta,handbolta tölvum og mörgum öðrum leikjum.
Einn daginn fékk hann póst í því stóð:
“Kæri Björn Bangsi þér er boðið að koma og leika í fótboltaliðinu KR.”
Björn Bangsi sendi til baka um að hann vildi leika í fótboltaliðinu.
Nokkrum dögum seinna fékk hann annað bréf frá KR í því stóð:
“Þú mátt með ánægju spila í fótboltaliðinu. ”
Síðan fór Björn Bangsi að og æfa sig í fótbolta og eftir 1 ár fór hann á fótboltamót það voru KR á móti Manchester United.
KR vann 4-1.
Björn skoraði 2 mörk og besti vinur hans skoraði líka 2 mörk.
Nýtt
- Þann 27. maí 2003
- Skráð af admin
- í Hitt og þetta
0
Ég verð að játa að ég er ekki alltof dugleg að uppfæra og koma með eitthvað nýtt. Ég veit vel að til þess að halda úti vef þarf jú altaf að vera að bæta einhverju við og svoleiðis.
Fyrir nokkrum vikum voru settar upp litlar heimasíður fyrir þrjá (af fimm) meðlimum fjölskyldunnar.
Hún Marín, sem er 12 ára, hefur átt sína síðu í þó nokkurn tíma en hún var ekki tengd við aðrar síður fyrr en núna um daginn. Marínu finnst gaman að skrifa stuttar sögur un allt mögulegt og fanst okkur tilvalið að leifa öðrum að njóta þeirra.
Melkora vildi auðvitað vera eins og stóra systir og eiga heimasíðu og þess vegna var hennar síða sett upp. Þar er ætlunin að bæta inn ýmsu skemmtilegu sem er að gerast í lífi Melkorku og jafnvel nokkrum vel völdum sögum úr sögubókinni hennar sem hún er búin að vera að skrifa í í allan vetur í skólanum.
Þriðja síðan er tileinkuð yngsta fjölskildi meðliminum sem í daglegu tali er kallaður bumbulingur. Þar sem Bumbulingur er ekki kominn í heiminn ennþá er ekki mikið að gerast á þessari síðu ennþá en húm mun verða uppfærð þegar tilefni gefst.
Hæ hæ [Stefán]
- Þann 5. maí 2003
- Skráð af admin
- í Stefán
0
Gaman að þú skyldir koma.
Ég er ennþá í hlýjunni innan í bumbunni á mömmu og ætla helst ekkert að koma þaðan út fyrr en um miðjan júlí.
Mér líður svo vel hérna inni, og ég sprikla mikið. Stundum heldur mamma mín að ég ætli bara að brjótast út í gegnum bumbuna, svona eins og ungi sem brýst út úr eggi, en ég er bara að æfa mig því maður verður að vera sterkur og til í slaginn þegar maður fæðist.
Ég á hvorki meira né minna en fjögur systkini og þeim finnst ofsalega gaman að setja höndina sína á bumbuna hennar mömmu þegar ég er að sprikla. Samt finnst þeim þetta allt saman líka vera voða skrítið.
Mamma og pabbi, og auðvitað sistskyni mín líka, eiga heima í Vogum á Vatnsleysuströnd, en þau fluttu þangað í ágúst á síðasta ári. Þeim finnst öllum voða gott að eiga heima þar, og miklu betra en að eiga heima í Reykjavík. Ég held bara að mér eigi eftir að finnast það líka, þótt að ég hafi aldrei átt heima annars staðar.