sunnudagur 9. ágúst 2009
Garðvinna
Nú í sumar höfum við tekið nokkur lítil, en árangursrík, dugnaðarköst.
Í einu þeirra var steinhæðin löguð hressilega til.
Í öðru var settur upp skjólveggur og pallur, ásamt með buslupotti fyrir börnin.
Nú stendur yfir enn eitt kastið. Í dag var settur upp skólveggur á SV-jaðri lóðarinnar, og nú skal tekið til við að planta þar út gróðri.
Ég nefnilega bað tengdapabba að sjá af nökkrum plönturæflum til mín, einhverju til að fegra og bæta aðeins með.
Sendingin kom, og voru það ca 70 plöntur, allt frá skriðlægum smáblómum til allstórra runna, trjáplantna og rósa.
Ekki er stefnan að láta gróðurinn deyja sínum drottni þannig að nú er ekkert annað að gera en að snúa öllu á haus og koma þessu vel fyrir.
Myndir verða birtar fljótlega þar sem afraksturinn og breytingarnar munu vonandi sjást.
sunnudagur 26. júlí 2009
Uppfærsla
Síðustu daga höfum við verið að uppfæra hjá okkur.
Stýrikerfið á vefþjóninum var orðið nokkuð úrelt og var því skipt út fyrir nýjasta nýtt.
Þetta á að tryggja aukið öryggi, þar sem nokkrar öryggisholur voru komnar fram sem erfitt var að loka í gamla kerfinu.
Nú er það allt bætt.
Enn um sinn má búast við að eitthvað virki ekki sem best í vefjum okkar. Einhverjar síður kannski týndar, eða auðar, eða guð má vita hvað annað.
Þá er bara að senda okkur tölvupóst, benda á villurnar, og við lögum þær. Kannski. Ef við nennum því. Það er nefnilega sumar, og ekki alveg gefið að það sé álitið mikilvægast að sitja við tölvuskjá.
þriðjudagur 31. mars 2009
Af fólki og fé.
Af fólki:
Hjörtur er alltaf að vinna inni á Veðurstofu, ýmist í kerfisstjórn, eða sem eftirlitsmaður á vakt. Nóg er að gera í kerfisstjórn þar sem sinna þarf allmörgu við sameiningu Veðurstofunnar og Vatnamælinga í eina stofnun.
Sigrún er komin á leikskóla.
Kannski var kominn tími til að hún færi í leikskóla. Vinnan þar leggst vel í hana, margt skemmtilegt að læra og gera.
Stefán er alsæll í leikskólanum, þar sem hann byrjaði í fyrrasumar, en nú nýlega fékk Anna einnig pláss á sama leikskóla, þó á annarri deild sé. Adda er komin með loforð um pláss á leikskólanum, en það verður þó ekki fyrr en í sumar, þó ekki sé enn ljóst hvort það verður fyrir eða eftir sumarleyfi. Þangað til verður hún hjá LIndu sinni.
Melkorka og Birkir unglingast. Ekki þarf að fjölyrða um það.
Helgi heldur sig mest fyrir austan með Lilju sinni. Vinnur hjá Búaðföngum á Stórólfsvelli og býr ýmist hjá Helgu og Simma, eða ömmu sinni og afa á Akri.
Af fé:
Hundurinn er fluttur að heiman.
Öfugt við allmarga hunda sem hafa "flutt í sveitina", þá flutti okkar hundur í þéttbýlið.
Marín og Valdi tóku Tinnu nefnilega til sín í vetur, og býr hún í þeirra einkarekna 3ja herbergja dýragarði.
Sem sagt: Allt í dandalafínu standi.
laugardagur 21. mars 2009
Í leikskóla er gaman
Eiginlega ætti ég að vera að þurka af og taka til í húsinu en rassinn minn er bara ekki að vilja lyftast frá stólnum þessa stundina. Eina hljóðið sem ég heyri er suðið í uppþvottavélinni en annars er afskaplega hljótt.
Marín og Valdi komu hérna í gær og höfðu á brott með sér Melkorku, Stefán og Önnu, og Hjörtur og Adda eru saman úti í bílskúr að ditta að öldungnum (bifrieð heimilisins). Birkir er á sínum stað, hjá Árna frænda sínum...
Já... því er ég eiginlega bara ein í kotinu eins og stendur....
Fyrir þá sem ekki vita ákvað ég að fara að vinna á leikskóla sl. haust,... Hluti af starfinu er að finna nýjar hugmyndir um það sem hægt er að gera með börnunum. Um daginn var mér bennt á skemmtilega vefsíðu um tónlist. Ég hef afskaplega gaman af því að syngja með börnunum og því hef ég verið að skoða þessa síðu af miklum ákafa og spilað myndskeiðin og lögin til að læra þau.
Margt af þessu er reindar meira fyrir eldri börn en þau sem ég er að vinna með... mín eru, þau elstu rétt skriðin yfir 2ja ára afmælisdaginn.... en þau elska að syngja flest öll... tala nú ekki um... að dansa... þannig að ég er búin að finna margar hugmyndir þarna sem ég (og við á deildinni) getum notað.
Nú er bara að vona að ég geri ekki alla í kring um mig (aðra á heimillinu) klikkaða á allri þessarri barnatónlist... :)
sunnudagur 8. mars 2009
Topp módel

Hún Melkorka fékk að leika sér með fjarstýringuna mína. Ég skellti myndavélinni upp á þrífótinn og stillti hana eftir kúnstarinnar reglum...
Það komu margar flottar, og sumar nokkuð skondnar, myndir út úr þessu... Þetta urðu alls um 600 myndir. Slatti af þeim var úr fókus eða á einhvern annan hátt ónothæfar sem er ekkert óvenjulegt við þessar aðstæður, en ég var eiginlega hissa hversu mikill fjöldi mynda kom út úr þessu.
Ég er ekki enn búin að vinna allar þær myndir sem ég vil vinna, en hérna eru samt nokkrar:




Ég mun svo setja fleiri myndir úr þessarri töku síðar en áhugasamir munu geta skoðað þær á flickr



















